Hreindýraborgarinn sem ærir óstöðuga

Ljósmynd/María Gomez

Hér erum við með hágæða ham­borg­ara sem bú­inn er til úr hrein­dýra­hakki og ætti að gleðja mat­gæðinga um allt land. Það er María Gomez á Paz.is sem á heiður­inn að þess­ari upp­skrift sem er al­gjör snilld.

Hreindýraborgarinn sem ærir óstöðuga

Vista Prenta

Geggjaður hrein­dýra­borg­ari

Borg­ar­ar 

  • 600 g hrein­dýra­hakk 
  • 250 g grísa­hakk 
  • 100 g Lu kex með salti og pip­ar 
  • 100 g pip­arost­ur rif­inn (þessi sem fæst rif­inn í boxi) 
  • 2 msk. villikraft­ur í duft­formi (ég notaði Vildt Bouillon frá Oscar sem fæst í Bón­us og víðar en má nota hvaða merki sem er)
  • 1 msk. vill­jurtir (ég notaði frá Potta­göldr­um)
  • 2 eggj­ar­auður 

Meðlæti og annað 

  • Ham­borg­ara­brauð 
  • Nokkr­ar sneiðar af vill­i­sveppakryddosti 
  • Sultaður rauðlauk­ur í bal­sa­mike­dik (fékk minn í Hag­kaup)
  • Súrsaðar gúrk­ur 
  • Lambhaga­kál 
  • kletta­sal­at 
  • 250 gr svepp­ir (skera í þunn­ar sneiðar, smjör­steikja og salta) 
  • Maj­ónes með garlic og cara­melised oni­on eða hvít­laukssósa að eig­in vali 

Aðferð

Borg­ar­ar 

  1. Byrjið á að setja hakkið sam­an í stóra skál 
  2. Næst setti ég svo Lu kex og rifna pip­arost­inn sam­an í blend­er og malaði þar til varð að fínu dufti (klístr­ast smá sam­an en myljið það svo í sund­ur milli fingr­ana ofan í skál­ina með hakk­inu)
  3. Setjið næst kraft­inn og kryd­d­jurtirn­ar sam­an við hakkið og að lok­um eggj­ar­auðurn­ar
  4. Hnoðið vel sam­an en bara þannig allt sé blandað sam­an, ef hnoðað er allt of mikið geta borg­ar­arn­ir orðnir seig­ir
  5. Skit­pið svo í 9 jafn­ar kúl­ur c.a 117-120 gr hver og mótið borg­ara með ham­borg­ara­pressu eða milli lóf­ana, ef þið gerið með lóf­un­um passið þá að hafa smá dæld í miðjunni svo hann steikist jafnt í gegn 
  6. Kælið í eins og 30 mín eða leng­ur áður en á að steikja þá
  7. Steikið borg­ar­ana vel í gegn, ég hafði mína dökka og vel steikta þannnig urðu þeir krí­spý. Setjið svo sneiðar af vill­i­sveppa­osti ofan á hvern borg­ara þar til hann er bráðin en ekki krydda borg­ar­ana neitt !!! Allt bragð er komið í hakkið

Sam­setn­ing 

  1. Takið ham­borg­ara­brauð í sund­ur og setjið sós­una á botn­inn, kálið svo ofan á, súrsaðar gúrk­ur og rauðlauk þar ofan á 
  2. Kjötið kem­ur svo ofan á allt heila klabbið og svepp­irn­ir efst og loka svo með efra brauði og njóta !!! 
Ljós­mynd/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert