Hér má finna úrval af flottustu kampavínsglösum landsins, fyrir þá sem eiga eftir að verða sér úti um fín glös fyrir gamlárskvöld.
Kampavínsskálar eru æðislegar! Þessi glös fást í versluninni Kokku, en þar úrvalið er gífurlegt í vínglösum.
mbl.is/Kokka
Eva Solo stendur alltaf fyrir sínu og hér með stílhreint kampavínsglas. Fæst í Líf og list.
Mbl.is/Eva Solo
Glös með karakter! Í glerinu eru skornar línur sem gera vörurnar einstakar og elegant. Fást í Ramba Store.
Mbl.is/Ramba Store
Gatsby glösin í stáli frá Frederik Bagger, ættu næstum að vera skyldueign – svo smart. Fást í Epal.
Mbl.is/Frederik Bagger
Í versluninni Ilva rákumst við á þetta glas með látlausu munstri í glerinu.
mbl.is/Broste