Fiskrétturinn sem enginn getur staðist

Það er Kolbrún Ýr hjá Keto þjálfun sem á heiðurinn …
Það er Kolbrún Ýr hjá Keto þjálfun sem á heiðurinn að þessari geggjuðu uppskrift. mbl.is/Mynd aðsend

Hér er á ferðinni fisk­rétt­ur sem eng­inn get­ur staðist! Ómót­stæðileg upp­skrift að þorsk­hnökk­um í boði Kol­brún­ar Ýrar hjá Keto-þjálf­un. Pestó, paprika, bei­kon og sal­atost­ur eru á meðal hrá­efna sem gera rétt­inn svona dá­sam­leg­an.

Fiskrétturinn sem enginn getur staðist

Vista Prenta

Fisk­rétt­ur­inn sem eng­inn get­ur staðist

  • Þorsk­hnakk­ar (miða við ca 200 g á mann), skorn­ir í bita
  • spínat
  • paprika
  • grænt pestó, ég nota alltaf frá Sóma eða Önnu Mörtu  hvort tveggja ferskt og gott
  • sal­atost­ur í krydd­legi (hét áður feta­ost­ur)
  • bei­kon, 1 pakki
  • salt­hnet­ur (má sleppa)
  • krydd að eig­in vali – svart­ur pip­ar eða jafn­vel sítr­ónupip­ar

Aðferð:

  1. Steikið bei­konið í ofni eða á pönnu.
  2. Setjið spínat í botn­inn á eld­föstu móti.
  3. Skerið niður papriku og setjið yfir spínatið.
  4. Raðið þorsk­hnökk­un­um í mótið og kryddið.
  5. Setjið mat­skeið af grænu pestói yfir hvern og einn fisk­bita og stráið einni krukku af sal­atosti (feta ost­ur) yfir allt fatið.
  6. Setjið inn í ofn við 200° í ca 30 mín­út­ur. Eft­ir 15 mín­út­ur, takið þá út og setjið bei­konið (niðurk­urlað/​skorið í bita) yfir allt, og toppið með salt­hnet­um til að fá smá „kröns“. Bakið áfram í aðrar 15 mín­út­ur. 
  7. At­hugið að eld­un­ar­tím­inn get­ur verið mis­mun­andi, taka þarf mið af ofn­in­um. Einnig ef þú vilt fisk­inn minna eldaðan, þá má stytta í 20 mín­út­ur. En ég elda hann í 30-40 mín­út­ur.
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert