Djúsí prótínpítsa sem stelur senunni

Þessi pítsa slær allar aðrar út af borðinu.
Þessi pítsa slær allar aðrar út af borðinu. mbl.is/Helga Magga

Hér er stór­kost­leg pítsa lent á borðum! Upp­skrift­in er úr smiðju Helgu Möggu nær­ing­arþjálf­ara, sem seg­ir pítsuna eina þá vin­sæl­ustu. „Ég ætla ekk­ert að spara stóru orðin, ég er nokkuð viss um að við erum hér með arf­taka hrökk­brauðspít­sunn­ar. Djúsí botn sem svík­ur eng­an pítsu­áhuga­mann og það besta er hvað það er ein­falt að gera botn­inn,“ seg­ir Helga Magga – og sýn­ir HÉR hvernig hún býr til botn­ana.

Djúsí prótínpítsa sem stelur senunni

Vista Prenta

Djúsí pró­tín­pítsa sem stel­ur sen­unni
Ein stór eða fjór­ar litl­ar

  • 1 bolli hveiti / 140 g
  • 1 bolli hreint skyr / 230 g
  • 1 tsk. lyfti­duft / 5g

Aðferð:

  1. Allt sett sam­an í skál og hnoðað sam­an, mér finnst oft þægi­leg­ast að nota hræri­vél­ina í þetta en það er líka hægt að hræra þetta í hönd­un­um.
  2. Fletja út og setja á bök­un­ar­papp­ír. Okk­ur famil­í­unni finnst betra að baka botn­ana fyrst í 20 mín. við 180 gráður og setja svo áleggið á og baka aft­ur í 8-10 mín. á sama hita. En það er líka í góðu lagi að setja áleggið beint á og baka þá í 20 mín. End­arn­ir verða aðeins meira krispí ef botn­inn er bakaður á und­an, eða eins og krakk­arn­ir mín­ir orðuðu þetta, „það er meira eins og Flat­eyj­ar-pítsa“.  
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert