Ný og örugg leið til að geyma avókadó

Avókadó er einn af okkar uppáhalds ávöxtum.
Avókadó er einn af okkar uppáhalds ávöxtum. mbl.is/

Okk­ar ást­sæli avóka­dóávöxt­ur, krumpaður að utan og mjúk­ur að inn­an, á það til að skemm­ast of fljótt í ís­skápn­um. En með þess­ari nýju aðferð mun hann end­ast svo til að ei­lífu.

Við höf­um áður minnst á hvernig best sé að geyma avóka­dó, sem oft­ar en ekki tek­ur sér óra­tíma í að mýkj­ast upp og skyndi­lega er hann orðinn brúnn að inn­an. Stund­um not­um við ein­göngu helm­ing­inn af ávext­in­um og þá er nán­ast gefið mál að hinn helm­ing­ur­inn sé ónýt­ur ef við leggj­um hann inn í ís­skáp. En með þess­ari ein­földu aðferð mun avóka­dóið end­ast leng­ur en þig grun­ar. Þú set­ur helm­ing­inn sem þú ætl­ar að geyma í box með loki og set­ur góða sneið af rauðlauk með. Lauk­ur­inn mun halda avóka­dó­inu leng­ur fersku.

Mbl.is/​TikT­ok
Mbl.is/​TikT­ok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert