Nýr glæsilegur stóll frá Vipp

Glæsilegur nýr stóll frá Vipp.
Glæsilegur nýr stóll frá Vipp. Mbl.is/Vipp

Vin­sæld­ir Vipp eiga sér eng­in tak­mörk – og nú kynna þeir splunku­nýj­an eld­hús­stól sem er enn ein viðbót­in fyr­ir alla fag­ur­kera þarna úti.

Hér ræðir um þægi­leg­an og glæsi­leg­an borðstól, nýj­ung í „Lod­ge“-vöru­línu þeirra, en stóll­inn kall­ast Vipp465 Lod­ge. Stóll­inn er hinn glæsi­leg­asti og full­kom­inn við fram­leng­ing­ar á eld­hús­eyj­um sem hægt er að sitja við. Sæt­in eru úr dökk­brúnu leðri og dökk­ir eikar­fæt­ur gera stól­inn enn glæst­ari. Bakið á stóln­um veit­ir góðan stuðning og faðmar hvern þann að sér sem sest í hann.

Þessi nýj­ung er þriðji stóll­inn í Lod­ge-serí­unni, en þessi til­tekna vöru­lína er sér­stak­lega hönnuð fyr­ir vænt­an­legt hót­el, „Vipp Lod­ge“, sem verður af­hjúpað á ár­inu.

Mbl.is/​Vipp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert