Undraverð breyting á gamalli KitchenAid-hrærivél

Við rák­umst á þessa stór­kost­legu KitchenAid-hræri­vél sem ný­verið fékk yf­ir­haln­ingu og út­kom­an er æðis­leg.

Við sett­um okk­ur í sam­band við Daniel Pilk­ingt­on sem birti mynd af hræri­vél­inni inni á grúpp­unni Skreyt­um hús á Face­book og for­vitnuðumst um hvernig það kom til að hún er kom­in í nýj­an bún­ing. „Ég og Björg kær­asta mín feng­um vél­ina gef­ins frá for­eldr­um henn­ar, en hún var búin að sitja lengi í geymslu hjá þeim. Hræri­vél­in var að öll­um lík­ind­um hvít, en var orðin hálfg­ul­leit og eitt­hvað af risp­um og þess hátt­ar – far­in að láta á sjá,“ seg­ir Daniel og gisk­ar á að vél­in sé 20-30 ára göm­ul. „Við erum ekk­ert smá þakk­lát að hafa fengið vél­ina, en átt­um erfitt með til­hugs­un­ina um að vera bara með ein­falda hvíta hræri­vél – því það er svo gam­an að hafa smá lit og karakt­er inni á heim­il­inu,“ seg­ir Daniel.

Daniel Pilkington flíkkaði upp á gamla hrærivél og útkoman er …
Daniel Pilk­ingt­on flík­kaði upp á gamla hræri­vél og út­kom­an er æðis­leg. mbl.is/​Mynd aðsend

Þetta er ekki fyrsta hræri­vél­in sem Daniel og Björg gera upp, en þau áttu eitt sinn aðra sem þau gáfu nýtt líf. Sú vél varð gul með hvít­um dopp­um og var án efa hápunkt­ur eld­húss­ins. En hvernig ber maður sig að við að gera upp slík­ar vél­ar? „Það er svo sem ekk­ert bylt­ing­ar­kennt í því að end­ur­mála KitchenAid-vél. Þú byrj­ar á að pússa hana alla til að ná upp­haf­legu lakki af og þríf­ur svo rykið. Síðan er teipað yfir/​tekn­ir af þeir part­ar sem maður vill ekki end­ur­mála. Næst er svo notað „pri­mer sprey“ yfir alla vél­ina, sem hjálp­ar lit­um að fest­ast bet­ur. Því næst er vél­in máluð með akr­íl­máln­ingu í þeim lit­um og stíl sem manni líst best á (um að gera að prófa eitt­hvað skemmti­legt og öðru­vísi). Að lok­um verður maður að fara yfir vél­ina með nokkr­um lög­um af lakki sem ver máln­ing­una und­ir. Til að ná jöfn­um fleti án þess að fá pensillín­ur finnst mér best að nota lakk í sprey­formi,“ seg­ir Daniel, sem tal­ar af reynslu hvað þetta varðar.

Daniel bæt­ir því við að hann taki að sér að flikka upp á KitchenAid-vél­ar ef ein­hver vill láta gera slíkt fyr­ir sig. Þá er hægt að setja sig í sam­band við Daniel und­ir Pilk­ingt­on­Props á Face­book/In­sta­gram – eða í tölvu­pósti Pilk­ingt­on­Props@gmail.com.

Ótrúlega flott nýja útlitið á hrærivélinni.
Ótrú­lega flott nýja út­litið á hræri­vél­inni. mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert