Hannaði sturlaðan sófa fyrir IKEA

Brauðbollusófi er væntanlegur frá Ikea.
Brauðbollusófi er væntanlegur frá Ikea. Mbl.is/©Tommy Cash

Þessi mjúki sófi mun fara í fram­leiðslu ef hann nær 10 þúsund komm­ent­um und­ir færslu á In­sta­gram. Við erum að tala um sófa sem lít­ur út eins og hann sé byggður úr pylsu­brauðum.

Eist­neski rapp­ar­inn Tommy Cash, sem einnig er þekkt­ur fyr­ir sam­starf sitt meðal ann­ars við Adi­das og Mai­son Margiele, hef­ur ásamt lista­mann­in­um Gab Bois búið til um­rædd­an sófa fyr­ir Ikea. Sóf­inn er eins og brauðbolla í út­liti og kall­ast LOAFA - en sóf­inn hef­ur skýr­ar til­vís­an­ir í Cama­leonda sóf­ann sem ít­alski hönnuður­inn Mario Bell­ini gerði fræg­an á sjö­unda ára­tug síðustu ald­ar. LOAFA verður þó ör­lítið ódýr­ari en ít­alska mubl­an sem má sjá víða á heim­il­um áhrifa­valda.

Tommy Cash hef­ur lýst því yfir á In­sta­gram síðu sinni, að sóf­inn verði tek­inn í fram­leiðslu ef tíuþúsund at­huga­semd­ir ber­ist und­ir færsl­una han. Og þegar þessi frétt er skrifuð hafa yfir 12 þúsund um­mæli borist – svo nú bíðum við eft­ir frétt­um frá Ikea þegar þeir til­kynna að brauðbollu­sóf­inn sé vænt­an­leg­ur í næsta vöru­hús.

Frétt Design­boom um málið.

View this post on In­sta­gram

A post shared by TOMM¥ €A$H (@tomm­ycashworld)

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert