Einfalt en fullkomið millimál

Hrökkkex er frábært millimál og fullt af góðum fræjum.
Hrökkkex er frábært millimál og fullt af góðum fræjum. Mbl.is/Pinterest_ groedgrisen.dk

Hið full­komna milli­mál ef þið spyrjið okk­ur! Hrökkk­ex stút­fullt af góðum fræj­um sem koma melt­ing­unni af stað. Frá­bært til að grípa í á milli mála í amstri dags­ins.

Einfalt en fullkomið millimál

Vista Prenta

Ein­falt en full­komið milli­mál

  • 1 dl haframjöl
  • 1 dl hör­fræ
  • 1 dl graskers­fræ
  • 1 dl sól­blóma­fræ
  • 1 dl ses­am­fræ – bæði hvít og svört
  • 1 mat­skeið chia­fræ
  • 1 tsk. lyfti­duft
  • 1 msk. salt
  • 50 g rúg­mjöl
  • 175 g hveiti
  • 1 dl repju­olía
  • 1¾ til 2 dl vatn

Aðferð:

  1. Hrærið öll­um hrá­efn­um sam­an í skál.
  2. Skiptið deig­inu í tvo hluta og fletjið út með bök­un­ar­papp­ír und­ir og ofan á. Leggið því næst á bök­un­ar­plötu.
  3. Skerið hvorn deig­hluta í sirka 20 bita og bakið þar til gyllt og stökkt við 200° í 20 mín­út­ur.
  4. Brjótið hrökkk­exið í sund­ur og látið kólna á bök­un­ar­plötu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert