Heimabakaðir snúðar sem koma á óvart

Girnilegir pestó snúðar að hætti Önnu Mörtu.
Girnilegir pestó snúðar að hætti Önnu Mörtu. mbl.is/Anna Marta

Við elsk­um nýbakaða snúða og þessi upp­skrift hér er svaka­lega ljúf­feng. Það er Anna Marta sem á heiður­inn að þess­um spelt-snúðum með grískri jóg­úrt og pestó – namm!

Heimabakaðir snúðar sem koma á óvart

Vista Prenta

Spelt snúðar með pestó og grískri jóg­úrt

  • 2 boll­ar spelt hveiti / 275 g
  • 1½ bolli hrein grísk jóg­úrt  / 365 g
  • Smá salt (½ tsk) 
  • 1 msk lyfti­duft/​15 gr
  • 3 msk ANNA­MARTA pestó
  • Lúka af mozzar­ella osti

Aðferð:

  1. Setjið hveitið, griska jóg­úr­tið, lyfti­duftið og saltið sam­an í skál og hnoðið sam­an. Gott að not­ast við hræri­vél eða hnoða í hönd­um.
  2. Fletjið deigið út í fer­hyrn­ing. Penslið deigið með pestó og stráið mozzar­ella ost­in­um yfir. Rúllið deig­inu upp. 
  3. Skerið niður í 14-16 snúða.
  4. Raðið á bök­un­ar­papp­ír með hæfi­legu bili á milli snúða.
  5. Bakið við 180 gráður í 15 -18 mín. Best að stilla ofn á blást­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert