M&M breytist í takt við tíðarandann

M&M persónurnar hafa fengið yfirhalningu.
M&M persónurnar hafa fengið yfirhalningu. mbl.is/M&M

Fíg­úr­ur súkkulaðihnappa M&M hafa fengið yf­ir­haln­ingu á út­liti og per­sónu­leika til að falla bet­ur und­ir nú­tíma­sam­fé­lag eins og við þekkj­um það í dag. Fyr­ir­tækið vill skapa „heim“ þar sem öll­um finnst þeir vel­komn­ir og ná að tengja sig við.

At­hygl­is­verðustu breyt­ing­arn­ar eru á brúnu og grænu M&M-hnöpp­un­um, sem eru kven­per­són­ur. Áður voru þær báðar í háum hæl­um en græna fíg­úr­an hef­ur fengið striga­skó, sem á að end­ur­spegla áreynslu­laust sjálfs­traust henn­ar. Aðrar breyt­ing­ar má sjá á húðlit á hand­leggj­um og fót­um og eins hafa gul­ur og rauður fengið reim­ar á skóna sína. Meiri áhersla hef­ur verið lögð á per­sónu­leika lit­anna frek­ar en kyn. Í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins seg­ir: „Við skoðuðum per­són­urn­ar okk­ar djúpt, að inn­an sem utan, og höf­um þróað út­lit þeirra, per­sónu­leika og bak­grunn til að vera dæmi­gerðara fyr­ir sam­fé­lagið í dag. Eins og heim­ur­inn breyt­ist, þá breyt­umst við líka.“

mbl.is/​M&M
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert