Fyrir hvað standa emmin í M&M?

Litríku súkkulaðidroparnir M&M, voru fyrst framleiddir árið 1941.
Litríku súkkulaðidroparnir M&M, voru fyrst framleiddir árið 1941. mbl.is/AP

Karakt­er­ar vin­sæl­ustu súkkulaðihnappa heims, M&M, fengu á dög­un­um yf­ir­haln­ingu á út­liti eins og við kom­um inn á hér á mat­ar­vefn­um. En fyr­ir hvað standa „emm­in“ í nafn­inu á súkkulaðinu sjálfu?

Hið sí­vin­sæla súkkulaðikon­fekt ef við meg­um kalla það sem slíkt, kem­ur í hinum ýmsu bragðteg­und­um – t.d. með hnetu­smjöri, hvítu súkkulaði, kara­mellu eða pretzel, svo eitt­hvað sé nefnt. Og allt kæt­ir þetta bragðlauk­ana! Við hám­um í okk­ur M&M eins og eng­inn sé morg­undag­ur­inn og höf­um lítið spáð í því til þessa, fyr­ir hvað emm­in í nafn­inu standa fyr­ir. Hér er eng­in stór ráðgáta á ferð, því emm­in standa fyr­ir nöfn­un­um Mars og Murrie – sem báðir stóðu fyr­ir þróun vör­unn­ar.

M&M var fyrst fram­leitt árið 1941 og var upp­haf­lega gefið mönn­um í banda­ríska hern­um sem börðust í seinni heims­styrj­öld­inni. En súkkulaðið var gætt þeim eig­in­leika að hægt var að bera það á sér í heitu lofts­lagi, án þess að það myndi bráðna svo auðveld­lega. Súkkulaðið varð gríðarlega vin­sælt eft­ir stríð, og var þá brugðið á það ráð að stimpla hvert súkkulaði með hinu fræga „M“, til að koma í veg fyr­ir að rugl­ast yrði á sæl­gæt­inu þeirra og ann­ara fram­leiðanda. Bók­staf­ur­inn var upp­haf­lega svart­ur en var breytt yfir í hvít­an árið 1954, og sama ár voru hnet­urn­ar kynnt­ar til leiks. Nýj­asta viðbót vörumerk­is­ins er Chocola­te Fudge Brownie sem fór í sölu í Banda­ríkj­un­um árið 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert