Vinsælustu pítsuspaðar landsins

Pítsuspaðar eru ómissandi á pítsakvöldum.
Pítsuspaðar eru ómissandi á pítsakvöldum. Mbl.is/Epicurean

Það eru eng­in geim­vís­indi er við segj­um frá því að Íslend­ing­ar elski góðar pítsur – þá ekki síður heima­bakaðar. Og þetta eru pítsu­spaðarn­ir sem eiga að vera þeir bestu!

Pít­sa­ofn­ar voru vin­sæl kaup hér á síðasta ári og marg­ir hverj­ir nota ofn­inn allt árið um kring á meðan aðrir láta sér nægja að baka í ofni. Til þess að full­komna pítsu­kvöldið, er gott að vera með réttu græj­urn­ar við hönd­ina – eins og pítsa­spaða og þess­ir hér eiga að vera þeir allra vin­sæl­ustu á land­inu. Spaðarn­ir eru unn­ir eru úr vist­vænni trjákvoðu og þola því uppþvotta­vél­ar sem er ákveðinn kost­ur. Eins er skásneidd­ur endi á spaðanum sem auðvelt er að renna und­ir pítsuna þegar verið er að færa hana úr ofni yfir á disk. Pítsu­spaðarn­ir eru sér­stak­lega hand­hæg­ir og þunn­ir svo auðvelt er að koma þeim fyr­ir í skúff­um eða að hengja á vegg – ekki skemm­ir fyr­ir hversu smart þeir eru. Spaðarn­ir eru fá­an­leg­ir HÉR.

Mbl.is/​Epicure­an
Mbl.is/​Epicure­an
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert