Framúrskarandi franskar vöffur að hætti Maríu Gomez

Ljósmynd/María Gomez

Eld­hús­gyðjan María Gomez á Paz.is galdr­ar hér fram fransk­ar vöffl­ur eins og meist­ar­inn sem hún er. „Þegar ég fer í bakarí kaupi ég mér ansi oft franska vöfflu. Fransk­ar vöffl­ur hafa verið til í baka­ríi síðan ég man eft­ir mér. Það er bara eitt­hvað við stökkt ytra lagið og sæta mjúka kremið inn í sem ég fell al­veg fyr­ir,“ seg­ir María og flest tök­um við sjálfsagt und­ir orð henn­ar enda fransk­ar vöffl­ur synd­sam­lega góðar.

„Hér ákvað ég að gera míni út­gáfu af franskri vöfflu en ég hef oft keypt þannig í stór­vörumörkuðum og ég held þær séu hafðar þannig á danska mát­ann. Ég ákvað að sleppa því að dífa þeim í súkkulaði en ykk­ur er frjálst að gera það ef þið viljið hafa þær eins og í bakarí­um lands­ins. Frönsku vöffl­urn­ar er ein­falt að gera, en þetta er frek­ar stór upp­skrift og því til­valið að baka til að eiga í frysti og taka út ef gesti ber að garði. Það dug­ir al­veg að taka þær út eins og 15 mín­út­um áður en á að bera þær fram.“

Ljós­mynd/​María Gomez

Framúrskarandi franskar vöffur að hætti Maríu Gomez

Vista Prenta

Fransk­ar Vöffl­ur

Deig 

  • 375 gr hveiti 
  • 375 gr mjúkt smjör 
  • 3 msk syk­ur eða hrá­syk­ur
  • 1/​2 tsk fínt borðsalt 
  • 1 dl vatn 
  • 1/​2 dl rjómi eða nýmjólk 
  • 1 eggja­hvíta til pennsl­un­ar og syk­ur til að dreifa yfir 

Krem 

  • 200 gr mjúkt smjör 
  • 300 gr flór­syk­ur 
  • 1 eggj­ar­auða 
  • 1 tsk vanillu­drop­ar 
  • 1/​2 dl rjómi 

Aðferð

Deig 

  1. Setjið öll þur­refni sam­an í hræri­vél­ar­skál með krókn­um á og hrærið aðeins sam­an 
  2. Bætið næst við mjúku smjör­inu skorið í ten­inga, vatn­inu  og rjóm­an­um og hnoðið vel sam­an þar til er orðið kekkjalaust og glans­andi 
  3. Látið standa í kæli í 1 klst og gerið kremið á meðan 

Krem 

  1. Setjið smjör í hræri­vél­ina með þeyt­ar­an­um á og þeytið þar til er orðið ljóst og loft­kennt
  2. Bætið þá flór­sykri smátt sam­an við og hrærið áfram vel sam­an 
  3. Bætið svo vanillu­drop­um, eggj­ar­auðunni og rjóm­an­um sam­an við og þeytið vel og lengi þar til kremið er vel loft­kennt og í hvít­ari kant­in­um

Aðferð við vöffl­urn­ar og sam­setn­ing

  1. Fletjið kalt deigið út í þunn­an fern­ing, eins þunn­an og þið kom­ist upp með án þess að sjá­ist í gegn 
  2. Skerið svo hringi út með hringskera eða glasi og teygið svo úr hringn­um þannig að hann verði ílang­ur eins og vöffl­urn­ar á mynd­inni 
  3. End­ur­takið þar til allt deigið er búið og setjið á bök­un­ar­plötu með bök­un­ar­papp­ír 
  4. Stingið göt í deigið með gaffli, pennslið með eggja­hvít­unni og stráið þunnt lag af sykri yfir 
  5. Stingið svo inn í 220°C heit­ann ofn­inn með blæstri og bakið í 7-8 mín­út­ur og látið kólna á plöt­unni 
  6. Þegar vöffl­urn­ar hafa kólnað sprautið þá kremi á einn helm­ing í þunni lagi og leggjið svo aðra vöfflu yfir 
  7. Ef þið viljið þá getið þið brætt dökkt súkkulaði og dýft helm­ingn­um út í og látið storkna 
Ljós­mynd/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert