Ljúffengar haframjölsbollur

Haframjölsbollur eru ljúffengar og góðar.
Haframjölsbollur eru ljúffengar og góðar. mbl.is/Pinterest_dagenstallerken

Hafra má nota í margt annað en hafra­graut. Hafr­ar eru frá­bær fæða, og hér eru hafr­ar í boll­um sem ættu að kæta alla fjöl­skyld­una í morg­un­mat eða sem nesti.

Ljúffengar haframjölsbollur

Vista Prenta

Ljúf­feng­ar haframjöls­boll­ur

  • 5 dl volgt vatn
  • 2 dl haframjöl
  • 25 g ger
  • 1 dl jóg­úrt
  • 180 g dur­um hveiti
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 2 tsk. salt
  • 500 g hveiti
  • 1 egg, pískað til að pensla með

Aðferð:

  1. Sjóðið hafra­grjón­in í vatni í 1-2 mín­út­ur og kælið þar til þau eru volg. Hrærið gerið sam­an við og því næst jóg­úrt­inu, dur­um hveit­inu, ol­í­unni og salti.
  2. Setjið plast­filmu yfir skál­ina og látið standa í 30 mín­út­ur. Hrærið þá rest­inni af hveit­inu sam­an við og hnoðið þar til deigið verður mjúkt. Látið hef­ast í 1 klukku­tíma.
  3. Mótið 16 boll­ur úr deig­inu og setið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu. Látið hef­ast í 15 mín­út­ur.
  4. Penslið boll­urn­ar með pískuðu eggi og stráið haframjöli yfir.
  5. Bakið við 200°C í miðjum ofni í 20 mín­út­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert