Svona verður vaskurinn hreinn á augabragði

Það er sáraeinfalt að þrífa eldhúsvaskinn þannig að hann verði …
Það er sáraeinfalt að þrífa eldhúsvaskinn þannig að hann verði skínandi hreinn. mbl.is/

Þegar þú vilt fá eldhúsvaskinn tandurhreinan með einfaldri aðferð og hráefnum úr skúffunni – þá er þetta aðferðin. Því ekkert jafnast á við tandurhreinan vask og hvað þá hreint eldhús ef því er að skipta.

Tandurhreinn vaskur á augabragði

  • Byrjið á því að sprauta uppþvottalögi yfir allan vaskinn.
  • Stráið því næst natron yfir.
  • Nuddið vaskinn með örtrefjaklút og makið þannig blöndunni vel yfir allt svæðið.
  • Skolið og þurrkið yfir með þurrum klút.
  • Eins má notast við sömublöndu á niðurfallið til að losa um óhreinindin þar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka