Eðlu burrito sem þú átt eftir að elska

Ljósmynd/María Gomez

Það er fátt skemmti­legra en þegar María Gomez á Paz.is fer í fram­kvæmd­ir og finn­ur upp eitt­hvað splunku­nýtt. Eins og þenn­an rétt hér.

Við erum að tala um eitt far­sæl­asta hjóna­band síðari ára: eðlu og burrito og út­kom­an er stór­brot­in.

Ljós­mynd/​María Gomez

Eðlu burrito sem þú átt eftir að elska

Vista Prenta

Eðlu Burrito

  • 500 gr hakk 
  • 1 krukka Missi­on chun­ky salsasósa 
  • 1 dl maís­baun­ir 
  • 1 pakki Missi­on vefj­ur orig­inal eða að eig­in vali 
  • Phila­delp­hia rjóma­ost­ur 
  • rif­inn mozzar­ella ost­ur 
  • salt og pip­ar (má líka krydda auka­lega með papriku­dufti, Cum­in og tim­i­an þá 1 tsk af hvoru)

Aðferð

  1. Steikjið hakkið á pönnu og kryddið 
  2. Bætið svo salsasós­unni og maís­baun­um út á, hitið ögn sam­an og slökkvið und­ir 
  3. Smyrjið svo rjóma­ost­in­um yfir alla vefj­una og dreifið rifn­um osti yfir 
  4. Setjið svo vel af hakk­inu á miðja vefj­una og rúllið upp 
  5. Hitið svo vefj­una á pönnu þar til mozzar­ella ost­ur­inn er bráðnaður og njótið 
Ljós­mynd/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka