Svona færðu púða til að verða mjúka á ný

Við elskum mjúka púða til að kúra með á næturnar.
Við elskum mjúka púða til að kúra með á næturnar. Mbl.is/lexingtoncompany.com

Púðar og koddar í rúminu eiga það til að verða flatir og missa allt loft úr sér. Þá er gott að leita í húsráðin á matarvefnum því hér lumum við á trixi sem gæti hjálpað til við að fá púðana til að verða „fluffí“ á ný.

Svona færðu púða til að verða mjúka á ný

  • Settu púðann í þurrkarann.
  • Taktu stuttermabol, snúðu upp á hann og vefðu honum þannig að hann myndi einskonar þykkan hnút. Settu bolinn með inn í þurrkarann.
  • Stilltu vélina á fimm mínútur og upprúllaði bolurinn mun hjálpa púðanum að hleypa meira lofti í fyllinguna er hann slæst í púðann og verður „fluffí“ á ný.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert