Svona er best að þrífa kuldaskóna

Það eru ef­laust ein­hverj­ir skór þarna úti sem þurfa að fá smá yf­ir­haln­ingu, enda hef­ur veðrið ekki verið upp á sitt besta und­an­farið. Hér er aðferð sem þríf­ur skóna á auga­bragði, því það jafn­ast ekk­ert á við hreina og góða skó þó að slabbið sé með yf­ir­gang þessi dægrin.

Svona þríf­ur þú kulda­skóna

  • Blandið sam­an skvettu af ed­iki og uppþvotta­lögi í skál með volgu vatni.
  • Bleytið örtrefja­klút upp úr blönd­unni og strjúkið yfir skóna þar til óhrein­ind­in renna af.
  • Látið þorna og njótið „nýja skóp­ars­ins“.
Sjáanlegur munur eftir að hafa þrifið með blöndunni.
Sjá­an­leg­ur mun­ur eft­ir að hafa þrifið með blönd­unni. mbl.is/​TikT­ok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert