Snjallasta leiðin til að hreinsa rúmdýnuna

Góður svefn er lykilatriði fyrir heilsuna.
Góður svefn er lykilatriði fyrir heilsuna. mbl.is/

Við reynum eftir fremsta megni að standa okkur í öllum þeim þrifum sem heimilið krefst af okkur og þá er gott að eiga nokkur auðveld trix upp í erminni. En þetta hér sýnir okkur hvernig best sé að þrífa rúmdýnuna okkar. Rúmdýnan er óhreinni en við í raun höldum, því ryk og sviti sest þar fyrir á nóttu hverri – kannski ekki sýnilegt, en enga síður eitthvað sem kjósum ekki að hafa í rúminu til lengdar.

Auðveld leið til að hreinsa rúmdýnuna

  • Blandaðu saman matarsóda og lavander.
  • Stráðu blöndunni yfir rúmdýnuna með sigti, til að blandan dreifist jafnt yfir dýnuna.
  • Láttu standa í eina klukkustund.
  • Ryksugaðu blönduna upp og njóttu!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert