Bolluuppskriftir eru eins margar og þær eru eflaust góðar. En þessi hér er fyrir keto-nagga, sem og þá sem vilja prófa eitthvað alveg nýtt - og er uppskriftin í boði Kolbrúnar hjá Keto þjálfun. „Glassúrinn á þessum bollum er alveg truflaður, mæli með að prófa hvort sem þú bakar keto bollur eða færð þér venjulega bollu“, segir Kolbrún.
Keto vatnsdeigsbollur með toffí glassúr
- 20 g kókoshveiti
- 40 g möndlumjöl
- 3 egg
- 125 g smjör
- 250 ml vatn
- 1 msk. XthanGum
- 1 msk. vínsteinslyftiduft /lyftiduft (venjulegt inniheldur hveiti)
- 5 dropar Stevia vanilludropar
Toffí lakkrís glassúr
- 1 poki af Toffí lakkrískúlur frá lowcarb.is
- 1 dl rjómi
Aðferð:
- Setjið vatn og smjör í pott og bræðið saman.
- Þegar vatnið og smjörið er bráðnað, slökkvið þá undir og bætið kókoshveitinu og möndlumjölinu saman við. Hrærið vel saman og bætið því næst Xanthan gum saman við.
- Látið kólna áður en eggin og vínsteinslyftiduft er sett saman við. Setjið 1 egg í einu og hrærið vel saman við. Endið á að blanda vínsteinslyftiduftinu og steviu dropum saman við deigið.
- Leyfið blöndunni að standa í ca. 5-10 min á meðan ofninn er að hitna. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og notið matskeið til að setja deigið á plötuna. Uppskriftin gefur um 12 bollur miðað við fulla matskeið.
- Bakið við 180-190° á blæstri í 25-30 mínútur, fer allt eftir ofnum.
- Toffí lakkrís glassúr: Lakkrís karamellukúlum og rjóma blandað saman og hitað í potti við vægan hita. Látið kólna aðeins áður en sett er á bollurnar, því blandan þykknar aðeins við að kólna.