Drykkurinn sem er ómissandi í brönsinn

Ítalskur freyðivínsdrykkur sem slær í gegn.
Ítalskur freyðivínsdrykkur sem slær í gegn. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er á ferðinni ít­alsk­ur freyðivíns­drykk­ur sem smellpass­ar í bröns­inn að sögn Hild­ar Rut­ar sem deil­ir upp­skrift­inni. „Venju­lega inni­held­ur kokteill­inn fer­skjumauk en hér er hann með jarðaberjamauki. Jarðaber og freyðivín, er til eitt­hvað betra?“, seg­ir Hild­ur Rut – og þar erum við sam­mála og leyf­um okk­ur að smakka.

Drykkurinn sem er ómissandi í brönsinn

Vista Prenta

Drykk­ur­inn sem er ómiss­andi í bröns­inn

1 drykk­ur

  • 1-2 dl Lamberti Prosecco
  • 3 jarðaber
  • 3 cl syk­urs­íróp

Aðferð:

  1. Byrjið á því að blanda sam­an jarðaberj­um og syk­urs­írópi með töfra­sprota eða í blend­er.
  2. Hellið 30-50 ml af jarðaberja­blönd­unni í fal­legt glas.
  3. Því næst hellið Prosecco og hrærið var­lega í drykkn­um.
  4. Skreytið með jarðaberi og njótið.

Syk­urs­íróp

  1. Blandið sam­an 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
  2. Bræðið syk­ur­inn á væg­um hita og hrærið þar til hann leys­ist upp. Kælið. Tek­ur nokkr­ar mín­út­ur.
  3. Ég helli syk­urs­íróp­inu ofan í flösku með tappa og geymi í ís­skáp. Það geym­ist í um 1 mánuð.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert