Húsráðin sem allir ættu að kunna

Kanntu öll húsráðin í bókinni?
Kanntu öll húsráðin í bókinni? mbl.is/

Snjöll hús­ráð geta komið víða við – ekki bara í eld­hús­um eða við elda­mennsku, því hér sýn­um við ykk­ur hnappa- og skó trix sem all­ir ættu að kunna.

Skyrtu­hnapp­ar
Skyrtu­hnapp­ar eiga það til að detta af við minnsta hnjask. Stund­um eru þeir ein­fald­lega ekki nægi­lega vel fest­ir og losna því auðveld­lega þegar við hneypp­um þeim oft og mörg­um sinn­um. En til þess að hnapp­arn­ir hald­ist þar sem þeir eiga að vera, þá er afar sniðugt að lakka yfir með glæru naglalakki á hnapp­ana til að þræðirn­ir fest­ist – og þá ættu þeir að hald­ast mun leng­ur án nokk­urra vand­ræða.

Rús­skins­skór
Blett­ótta rús­skins­skó þarf að þrífa rétt eins og allt annað. Og til þess að ná að þrífa slíka skó sem best, er ráð að hella augn­f­arðahreinsi í bóm­ull­ar­skífu og þurrka þannig létt yfir skóna. Óhrein­ind­in munu sýna sig í bóm­ull­ar­skíf­unni og skórn­ir verða eins og nýj­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert