Drykkurinn sem keyrir daginn í gang

Æðislegur boost drykkur í boði Helgu Möggu.
Æðislegur boost drykkur í boði Helgu Möggu. mbl.is/Helga Magga

Hér er á ferðinni boost drykk­ur, eða hin full­komna bomba til að keyra dag­inn í gang. Upp­skrift­in er í boði Helgu Möggu sem seg­ir þenn­an vera í miklu upp­á­haldi.

Drykkurinn sem keyrir daginn í gang

Vista Prenta

Drykk­ur­inn sem keyr­ir dag­inn í gang (fyr­ir einn)

  • 80 gr fros­in hind­ber
  • 90 gr epli
  • 1 lime
  • 30 gr sítr­ónu prótein­duft
  • 150 ml möndl­umjólk eða önn­ur mjólk
  • 6-8 klak­ar

Aðferð:

  1. Blandið öllu vel sam­an í bland­ara, þykkt­in á boost­inu ræðst af því hversu mik­inn vökva þú not­ar. Mér finnst 150-200 ml vera hæfi­legt magn. Það er líka hægt að nota vanillu­prótein í þetta boost.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert