Einfaldur, næringarríkur og ódýr kjúklingaréttur

Ómótstæðilegar kjúklingabollur í boði Helgu Möggu.
Ómótstæðilegar kjúklingabollur í boði Helgu Möggu. mbl.is/Helga Magga

Ein­falt, nær­ing­ar­ríkt og ódýrt! Það eru ein­kunn­ar­orð þessa frá­bæra rétts sem við bjóðum upp á hér, fyr­ir utan hversu vel hann smakk­ast. Upp­skrift­in kem­ur úr smiðju Helgu Möggu sem seg­ir rétt­inn vin­sæl­an á sínu heim­ili.

Ein­fald­ur, nær­ing­ar­rík­ur og ódýr kjúk­linga­rétt­ur

Vista Prenta

Kjúk­linga­boll­urn­ar sem full­komna sunnu­dag­inn

  • 150 g spergilkál
  • 600 g kalk­úna­hakk (frosið)
  • 2 stk. brauðsneiðar / 70 gr
  • 100 g eggja­hvít­ur
  • 100 g rif­inn ost­ur
  • 100 g kota­sæla
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. pip­ar

Aðferð:

  1. Byrjið á að gufu­sjóða spergilkál í 10 - 15 mín. Ég byrja oft á þessu og læt spergilkálið kólna aðeins en það má líka fara beint í skál­ina heitt. Ekki sleppa spergilkál­inu í upp­skrift­inni, ég lofa það finnst ekk­ert bragð af því, það verður ljóst og þegar sósa er kom­in á boll­urn­ar sjá börn­in þín það held­ur ekki. Það má mauka það í mat­vinnslu­vél eða skera það niður mjög fínt. 
  2. Ristið tvær brauðsneiðar frek­ar mikið, 2-3 sinn­um og mauka þær svo í bland­ara svo þær verði að brauðmylsnu. Því næst er öllu hrært sam­an í hræri­vél (eða hönd­un­um) og litl­ar boll­ur mótaðar. Ég nota ½ dl mál eða annað álíka til að móta boll­urn­ar og hafa þær jafn stór­ar, ann­ars skipt­ir stærðin ekki öllu.
  3. Boll­urn­ar eru sett­ar á bök­un­ar­plötu og hitaðar við 190 gráður í 25 mín­út­ur.
  4. Með þessu hef ég kart­öfl­ur, brúna sósu og ferskt sal­at. Ég geri yf­ir­leitt brúna sósu úr pakka og bragðbæti hana með salti og pip­ar og smá kjöt­krafti í stað þess að gera sósu frá grunni úr rjóma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert