Jerry Seinfeld í nýrri bíómynd um vinsælt sætabrauð

Gamanþáttaleikarinn Jerry Seinfeld er með nýja bíómynd í framleiðslu.
Gamanþáttaleikarinn Jerry Seinfeld er með nýja bíómynd í framleiðslu. mbl.is/silve.com

Gam­anþátta­leik­ar­inn Jerry Sein­feld hef­ur tekið nýja stefnu í brans­an­um, er hann kynnti á dög­un­um nýja bíó­mynd sem hann vinn­ur að og fjall­ar um upp­runa vin­sæls sæta­brauðs – eða Pop Tarts.

Pop Tarts er einskon­ar sæta­brauð sem þú set­ur í rista­vél­ina og hef­ur verið fram­leitt af Kellogg's síðan 1964. Hér fer hinn frægi gam­an­leik­ari með aðal­hlut­verk, sér um skrift­ir og fram­leiðslu á bíó­mynd­inni „Un­frosted“. Sein­feld hef­ur gefið út að mynd­in sé byggð meðal ann­ars á einu augna­bliki hans frá barnæsku, er hann upp­götvaði Pop-Tarts í fyrsta sinn. En hann hef­ur sagt frá at­vik­inu í nokkr­um upp­stönd­um í gegn­um árin og fannst tíma­bært að fleiri fengju að heyra sög­una, og þá í heilli bíó­mynd.

Þess má geta að Net­flix hef­ur keypt rétt­inn á mynd­inni til sýn­ing­ar, sem hef­ur til þessa ekki fengið út­gáfu­dag – en tök­ur munu hefjast í maí nk.

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert