Fékk pastaréttinn að láni hjá Jamie Oliver

Pastaréttur sem slær alltaf í gegn.
Pastaréttur sem slær alltaf í gegn. mbl.is/Hjá Höllu

Veit­inga­húsa­eig­and­inn Halla María „Hjá Höllu“ – elsk­ar ein­falda og góða rétti og fær­ir okk­ur þenn­an pasta­rétt sem all­ir ættu að geta galdrað fram á auga­bragði.

„Fyr­ir nokkr­um árum horfði á ég þátt með Jamie Oli­ver og var hann að gera ein­fald­asta pasta sem ég hef séð. En ein­falt er alltaf best! Þessi upp­skrift er svo búin að fara í nokkra hringi hjá mér í gegn­um tíðina og er þetta eitt­hvað sem ég á alltaf í og get reddað mér hvenær sem er þegar ég nenni ómögu­lega að hugsa hvað á að vera í mat­inn“, seg­ir Halla María.

Fékk pastaréttinn að láni hjá Jamie Oliver

Vista Prenta

Halla fékk pasta­rétt­inn að láni hjá Jamie Oli­ver

  • 1/​2 dl góð ólífu­olía
  • 2 hvít­lauks­geir­ar
  • Rautt chilli (hér þarf hver og einn að ákveða hversu mikið chilli - ég nota lág­mark eitt stykki með öllu í)
  • 100 g ferskt basil
  • 1 dós tóm­at­ar í dós, diced
  • Salt og pip­ar
  • Par­mes­an
  • Gott pasta, sjóða eft­ir leiðbein­ing­um (mis­jafnt hvað ég nota. en það er líka gott að nota ravi­oli ef það er til)

Aðferð:

  1. Saxið hvít­lauk, chilli og basil smátt, hellið olíu á pönnu og látið hitna vel. Hellið því næst hvít­lauk og chilli á pönn­una þannig að það braki í því.
  2. Strax eft­ir það, helm­ingn­um af basil­inu og tómöt­um í dós. Látið suðuna koma upp og slökkið und­ir. Saltið og piprið.
  3. Þegar pastað er klárt er því helt á fal­legt fat og sós­an sett yfir.
  4. Berið fram með fersk­um par­mes­an, ólífu­olíu, salti og pip­ar og ekki versn­ar þetta ef það er kalt hvít­vín með.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert