Geggjuð ostakaka í boði Axels

Axel Þorsteinsson sælkerabakari með meiru.
Axel Þorsteinsson sælkerabakari með meiru. mbl.is/Mynd aðsend

Sæl­kera­bak­ar­inn og heims­hornaflakk­ar­inn, Axel Þor­steins­son, fær­ir okk­ur þessa ómót­stæðilegu osta­köku sem geng­ur und­ir nafn­inu San Sebastian. Hann seg­ir kök­una vera ein­falda í fram­reið og í miklu upp­á­haldi.

Geggjuð ostakaka í boði Axels

Vista Prenta

San Sebastian ostakaka

  • 500 g rjóma­ost­ur (ekki smyrj­an­leg­ur)
  • 300 g sýrður rjómi 18%
  • 200 g mascarpo­ne
  • 400 g rjómi
  • 3 tsk. mais sterkja
  • 1 tsk. köku­hveiti
  • 2 ½ bolli syk­ur
  • 4 stór egg (60 gr hvert)
  • 1 feit og djúsí vanillu stöng (gæt­ir fengið góða í næsta baka­ríi)
  • Áhöld: Skál, sleikja, vigt. Hring­laga form 26 x 6 cm.
  • Tips: Vanilla sem færst í mat­vöru­versl­un er vana­lega ekk­ert frá­bær, þannig notið annað hvort tvær þannig, eða notið dropa í staðinn (3 tsk). Ég er mjög vand­lát­ur á vanillu, en þetta er allt smekks­atriði.

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200 gráður með blæstri.
  2. Takið köku­hring­inn og létt fitið hann með smjöri eða spreyi. Settu smjörpapp­ír í formið (þetta get­ur verið hvaða stærð sem þú vilt og það má vera botn á hringn­um, en þarf ekki).
  3. Öll hrá­efni þurfa að vera við stofu hita. Mik­il­vægt er að hræra mjög ró­lega svo deigið fái ekki loft í sig. Hrærið með sleikju, ekki písk­ara.
  4. Settu rjóma­ost, mascarpo­ne og sýrðan rjóma í skál, og blandið rjóm­an­um var­lega sam­an við svo deigið kekk­ist ekki.
  5. Skerið vanill­una í tvennt og skafið fræ­in úr - setjið í skál­ina. Reynið að skafa eins vel og hægt er.
  6. Blandið sykr­in­um sam­an við, sigtið svo þur­refn­in í og blandið.
  7. Hellið deig­inu í formið, bankið í borðið til að losa um eitt­hvað loft sem gæti verið í deig­inu. Hvílið í 10-20 mín­út­ur til að deigið losni við loftið.
  8. Bakið í 20-25 mín. Kak­an mun vera soldið „wiggly“ en hún á að vera það. Hækkið hit­ann núna í 280-300 gráður (öskr­andi heitt) - því hærra því betra.
  9. Bakið kök­una þangað til hún er orðin dökk brún (kara­mellusera topp­inn vel).
  10. Takið kök­una út og kælið niður.
Ofboðslega góð ostakaka sem ber hið virðulega nafn „San Sebastian“.
Ofboðslega góð ostakaka sem ber hið virðulega nafn „San Sebastian“. Mbl.is/​everylitt­lecrumb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert