Drottningin með nýjan uppþvottalög á markað

Nýr uppþvottalögur frá hennar hátign, Elísabetu Englandsdrottningu.
Nýr uppþvottalögur frá hennar hátign, Elísabetu Englandsdrottningu. Mbl.is/BAV Media_Getty

Hug­mynda­auðgi henn­ar há­tign­ar virðast eng­in tak­mörk sett og nú hef­ur Elísa­bet Eng­lands­drottn­ing sett nýja vöru á markað – splúnku­nýj­an uppþvotta­lög.

Henn­ar há­tign sem verður 96 ára í næsta mánuði, fann sér nýtt verk­efni í sam­komu­banni sem marg­ur myndi ekki elska, en Elísa­bet fann sig við að vaska upp skít­ugt leirtau. Sam­kvæmt heim­ili­dar­manni, þá mun drottn­ing­in hafa reglu­lega brett upp erm­ar og staðið vakt­ina við upp­vaskið eft­ir fjöl­skyldu­boð í skosk­um sveit­um. Nýji uppþvotta­lög­ur­inn er ilm­andi af allskyns villi­grös­um sem og ang­an af strand­ar­ferðum drottn­ing­ar­inn­ar sem hún nýt­ur eft­ir bestu getu. Þess má einnig geta að Elísa­bet gaf ný­verið út nýj­an ilm fyr­ir hunda, sem hef­ur notið mik­illa vin­sælda þar ytra.

Nýr ilmur fyriir hunda er einnig nýjun frá drottningunni.
Nýr ilm­ur fyri­ir hunda er einnig nýj­un frá drottn­ing­unni. mbl.is/​Bav Media
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert