Stelton kynnir nýjan lit á vinsælustu kaffikönnu heims

Heiðgul eins og sólin!
Heiðgul eins og sólin! mbl.is/Stelton

Ein vin­sæl­asta kaffikanna allra tíma, er án efa þessi hér frá Stelt­on – sem nú er fá­an­leg í mjúk­um gul­um lit og smellpass­ar inn á páska­borðið. Heiðgul eins og sól­in!

Kaffikann­an EM77, var hönnuð af Erik Magn­us­sen árið 1977 og finnst í ótal út­færsl­um og lit­um – enda ein sú vin­sæl­asta á kaffi­borðið ef marka má fag­ur­kera lands­ins og enn víðar út fyr­ir lands­stein­ana. Hér er svo kann­an mætt í splúnku­nýj­um lit fyr­ir pásk­ana, en lit­ur­inn kall­ast „Mellow Yellow“ og set­ur svo sann­ar­lega punkt­inn yfir i-ið á borðið með hækk­andi sól.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert