Svakalegur sítrónukjúklingur

Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Hug­mynd sem virki­lega geng­ur í mat­ar­boð eða sauma­klúbb. Allt eldað sam­an á einni, stórri pönnu og óþarfi á frek­ara meðlæti þótt brauðmeti henti með til að dífa í. At­hugið að í upp­skrift­inni er notað orzo-pasta sem fæst orðið í mörg­um versl­un­um. Í stað þess má nota annað smá­gert pasta, rísotto-grjón, blóm­káls­hrís­grjón, kús-kús, perlu­bygg og annað sem hug­ur­inn girn­ist.

Svakalegur sítrónukjúklingur

Vista Prenta

Sítr­ónukjúk­ling­ur með Sal­atosti

Fyr­ir 6

Kjúk­ling­ur og mar­in­er­ing

  • 6 stk. kjúk­linga­bring­ur
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 2 msk. dijon sinn­ep
  • 3 stk. hvít­lauksrif, skor­in í sneiðar
  • 2 stk. skalott­lauk­ur
  • 2 msk. ferskt rós­marín, saxað
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • • salt og svart­ur pip­ar

Pasta

  • 1 msk. ólífu­olía
  • 1 stk. sítr­óna, skor­in í sneiðar
  • 3 msk. smjör
  • 180 g orzo-pasta

Sósa

  • 7 dl kjúk­linga­soð
  • 200 g græn­kál eða annað sal­at (t.d. spínatsal­at), smátt skorið
  • 2 msk. sítr­ónusafi
  • salt og pip­ar
  • 1 krukka Dala sal­atost­ur í kryddol­íu (325 g)

Meðlæti

  • gott brauð

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 220 gráður.
  2. Setjið allt hrá­efnið í skál (kjúk­ling­ur og mar­in­er­ing) og blandið vel.
  3. Gott að leyfa þessu að standa aðeins og mar­in­er­ast. Má gera fyr­ir­fram.
  4. Hitið 1 msk. af olíu á stórri pönnu á meðal­hita.
  5. Setjið kjúk­ling­inn á pönn­una ásamt mar­in­er­ing­unni og steikið hann þar til hann fær á sig gyllt­an lit.
  6. Takið kjúk­ling­inn af pönn­unni og setjið á disk.
  7. Bætið olíu og smjöri á pönn­una.
  8. Leggið sítr­ónusneiðarn­ar á pönn­una og steikið aðeins á báðum hliðum.
  9. Takið sítr­ón­una af pönn­unni og hrærið orzo sam­an við ol­í­una á pönn­unni þannig að það steikist smá og verði þakið olíu.
  10. Hellið soði á pönn­una til að búa til sós­una og setjið sal­atið sam­an við ásamt sítr­ónusafa.
  11. Saltið og piprið blönd­una eft­ir smekk. Komið upp suðu og hrærið vel.
  12. Setjið kjúk­linga­bit­ana á pönn­una og leggið sítr­ónusneiðarn­ar yfir.
  13. Dreifið Sal­atost­in­um yfir allt að lok­um.
  14. Setjið í heit­an ofn­inn í um 15 mín­út­ur eða þar til kjúk­ling­ur­inn er eldaður í gegn.
  15. Það má bera fram auka­lega ostasósu með rétt­in­um ef vilji er til.
  16. Þá er Sal­atost­ur ásamt grískri jóg­úrt, smá hvít­lauk og sítr­ónusafa hrærður í bland­ara þar til sós­an er silkimjúk og hún smökkuð til með salti og pip­ar.
  17. Að sjálf­sögðu er svo gott að hafa brauð með rétt­in­um til að dýfa í.

Höf­und­ur: Halla Bára Gests­dótt­ir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert