Nýjasta æðið fyrir páskana

mbl.is/@favnenfuld/ Maria Bøgh

Það verður ekki af því skafið að okk­ar hug­mynda­ríka fólk þarna úti, sér til þess að allt sé upp á tíu fyr­ir pásk­ana. Hér má sjá nýj­asta æðið í páska­skrauti, en það eru svo­kallaðir „eggjakr­ans­ar“, fyllt­ir blóm­um, fjöðrum eða jafn­vel kert­um ef því er að skipta.

Svona ger­ir þú eggjakr­ans

  • Egg
  • Lím­byssa
  • Edik

Aðferð:

  1. Gerðu lítið gat ofan á egg­in til að hreinsa inni­haldið út. Notaðu egg­in sjálf til mat­ar­gerðar – búðu til eggja­kök­ur fyr­ir fjöl­skyld­una.
  2. Skreyttu eggja­skurn­inn ef þú vilt.
  3. Límdu egg­in sam­an á hliðunum í hring – eins og blóm­sveig. Hér er gott að nota pott til að raða eggj­un­um ofan í og mynda heil­an hring.
  4. Skreytið að vild og gleðilega páska.
Eggjakrans er nýjasta æðið.
Eggjakr­ans er nýj­asta æðið. mbl.is/@​diy_camilla
mbl.is/ @tan­tegroens­have/ Jytte Ag­ger­holm Ju­stesen
mbl.is/@​nordic_cozy_creati­ve
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert