Morgunverður að hætti Gordon Ramsay

Ofsalega girnileg útgáfa af egg benedikt.
Ofsalega girnileg útgáfa af egg benedikt. mbl.is/Matarmenn

Hér er á ferðinni upp­skrift sem við get­um ekki litið fram­hjá – enda eng­in ástæða til. Það eru Mat­ar­menn sem færa okk­ur egg bene­dikt með stökkri parma­skinku og heima­gerðri hollandaise sósu, en þeir fengu þessa klass­ísku upp­skrift úr smiðju Gor­don Ramsay.

Morgunverður að hætti Gordon Ramsay

Vista Prenta

Egg bene­dikt með stökkri parma­skinku

  • Ólífu­olía til steik­ing­ar
  • 50 ml hvít­vín­se­dik
  • 10 sneiðar parma­skinka
  • 4 egg
  • 2 ensk­ar skons­ur

Hollandaise sósa

  • 3 eggj­ar­auður
  • 2 tsk. hvít­vín­se­dik
  • 250 g bráðið smjör
  • 1 msk. fersk­ur sítr­ónusafi
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
  • Graslauk­ur (val)

Aðferð:

  1. Hitið olíu á pönnu og steikið parma­skink­una. Þerrið skink­una með eld­húspapp­ír.
  2. Skerið skons­una þvert og steikið á sömu pönnu þar tl þær verða gull­in­brún­ar og krispí.
  3. Hitið vatn að suðu í stór­um potti. Bætið við ed­iki og salti.
  4. Brjótið eggið í bolla eða litla skál, hrærið í pott­in­um með hring­laga hreyf­ing­um þar til vatnið helst á ferð hring eft­ir hring. Leggið þá boll­ann var­lega í miðjuna svo eggið fljóti úr hon­um. Sjóðið eggið í 3 mín­út­ur og takið það svo var­lega upp úr pott­in­um og þerrið á eld­húspapp­ír.
  5. Raðið nú sam­an skons­unni með stökkri parma­skinku og egg­inu og toppið með hollandaise sósu og graslauk (ekki nauðsyn en mjög gott og fal­legt).

Hollandaise sósa

  1. Setjið vatn í pott og skál yfir þannig að hún snerti ekki vatnið. Hitið þannig það rétt bubbli í pott­in­um.
  2. Bætið eggj­ar­auðum og ed­iki í skál­ina og hrærið vel þar tl bland­an byrj­ar að þykkna.
  3. Þá má byrja að bæta við smjör­inu, gott er að setja um tvær mat­skeiðar í einu og hræra vel á milli.
  4. Þegar allt smjörið er komið sam­an við blönd­una er sítr­ónusaf­an­um bætt við ásamt salti og pip­ar eft­ir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert