Morgunverðurinn sem fullkomnnar páskana

Ofnbakað brauð með berjum - ofsalega gott.
Ofnbakað brauð með berjum - ofsalega gott. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Ljúf­fengt ofn­bakað brauð fyllt með grísku jóg­úr­ti, eggi, kanil, hlyns­írópi og fersk­um berj­um – í boði Hild­ar Rut­ar, sem seg­ir rétt­inn vera full­kom­inn í bröns­inn eða þegar maður vill gera vel við sig.

Ofn­bakað brauð sem full­komnn­ar pásk­ana

Upp­skrift­in ger­ir tvær brauðsneiðar

  • Tvær þykk­ar súr­deigs­brauðssneiðar eða annað gott brauð
  • 1 egg
  • 2 msk Antos grísk jóg­úrt
  • 1 tsk kanill
  • 2 msk hlyns­íróp
  • 7-9 hind­ber
  • 3 stór jarðaber

Aðferð:

  1. Skerið brauðið í þykk­ar sneiðar.
  2. Pressið í miðjuna með skeið eða litlu desi­lítra máli og myndið skál (eða dæld) í brauðsneiðarn­ar.
  3. Hrærið eggið sam­an við gríska jóg­úrt, kanil og hlyns­íróp. Blandið öllu vel sam­an.
  4. Hellið ofan í brauðið.
  5. Skerið ber­in smátt og dreifið ofan í  eggja­blönd­una.
  6. Bakið í ofni í 12-15 mín­út­ur við 180°C.
  7. Stráið flór­syk­ur yfir í gegn­um sigti og berið fram með meira sírópi. Mmmm…og njótið vel.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert