Risaeðluafmælið sem sló í gegn

Risaeðlurnar slógu heldur betur í gegn í barnaafmæli nú á …
Risaeðlurnar slógu heldur betur í gegn í barnaafmæli nú á dögunum. mbl.is/Mynd aðsend

Við rák­umst á skemmti­leg­ar hug­mynd­ir á In­sta­gram síðunni hjá Aðal­heiði Ýr. Hún hélt upp á af­mæli son­ar­ins fyr­ir stuttu síðan, er Ólaf­ur Elí varð fimm ára þann 30. apríl síðast liðinn. Þar mátti sjá risaeðlur í ýms­um út­færsl­um því veit­ing­arn­ar voru hugsaðar út frá því þema.

„Ólaf­ur Elí er með risaeðludellu á háu stigi og hann var byrjaður fyr­ir jól að plana af­mæl­isþema. Á síðasta ári voru það sjó­ræn­ingj­ar og hval­ir. Ég var búin að vera skoða Pin­t­erest til að sanka að mér hug­mynd­um og hugsa um hvernig væri best að út­færa þetta. Ég fékk síðan Sylvía Hauk­dal bakst­urssnill­ing hjá Bake Me a Wish til að gera sjálfa af­mæl­is­kök­una. Hún hef­ur gert kök­ur fyr­ir mig frá því að Ólaf­ur Elí var skírður. Við skreytt­um síðan kök­una með risaeðluleik­föng­um sem Ólaf­ur Elí valdi,“ seg­ir Aðal­heiður í sam­tali.

Hvað var boðið upp á?  „Við vor­um með Rice Krispies með Dumle kara­mell­um í risaeðlu form­um og lít­il nammiegg sem áttu að vera risaeðlu­egg. Síðan vor­um við með heita brauðrúllu, mar­engstertu, kjúk­linga­lund­ir, mini ham­borg­ara og pítsur. Því til viðbót­ar var risaeðlunammi og syk­ur­púðar í krukku. Við vor­um líka með ávexti  á boðstól­um og Elli maður­inn minn skar út mel­ónu eins og risaeðluhaus sem kom mjög vel út. Að lok­um buðum við upp á syk­ur­laus­an berja­djús sem við sett­um sítrusávexti út í,“ seg­ir Aðal­heiður að lok­um og við leyf­um mynd­um að tala sínu máli.

Kökuform og diskar var keypt hjá Confetti systers.
Köku­form og disk­ar var keypt hjá Con­fetti systers. mbl.is/​Mynd aðsend
Afmælisbarnið - Ólafur Elí, fimm ára.
Af­mæl­is­barnið - Ólaf­ur Elí, fimm ára. mbl.is/​Mynd aðsend
Kökuna keypti Aðalheiður hjá Bake Me a Wish.
Kök­una keypti Aðal­heiður hjá Bake Me a Wish. mbl.is/​Mynd aðsend
Þemað var tekið alla leið!
Þemað var tekið alla leið! mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
Fjölskyldan samankomin á afmælisdaginn.
Fjöl­skyld­an sam­an­kom­in á af­mæl­is­dag­inn. mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert