Bless bless ljótu límmiðar

Límmiðasnilldin sem þarf að vera til í hverju eldhúsi.
Límmiðasnilldin sem þarf að vera til í hverju eldhúsi. mbl.is/Amazon

Skipu­lag í eld­hús­inu er núm­er eitt, tvö og þrjú – og í því felst að merkja box og umbúðir til að hafa allt í röð og reglu. Hér eru límmiðar sem þú munt elska, og þeir klístr­ast ekki eins og marg­ir aðrir sam­bæri­leg­ir.

Hér eru límmiðar sem þú get­ur límt á hvaða glerkrukk­ur, plast­box og einnig vör­ur úr áli – þeir duga á allt. Það gæti ekki verið auðveld­ara að merkja mat­vör­urn­ar en með þess­um miðum, þar sem þú skrá­ir inni­hald og dag­setn­ingu, sem kem­ur sér vel ef um af­ganga sé að ræða og þeir eru á leið inn í frysti. Og mesta snilld­in í þessu er sú, að til að losa um límmiðann, þá þarftu ein­fald­lega að láta heitt vatn renna yfir og hann losn­ar á auga­bragði án þess að skilja eft­ir sig nokk­urt lím eða önn­ur um­merki. En af feng­inni reynslu, virðast marg­ir límmiðar vilja sitja sem fast­ast eft­ir á ílát­un­um sem kall­ar á frek­ari aðgerðir til að ná sjálfu lím­inu af. Límmiðana má skoða nán­ar HÉR.

mbl.is/​Amazon
mbl.is/​Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert