Þrifatrixið sem TikTok-arar elska!

Ljósmynd/Colourbox

Við þurf­um að vita og kunna þetta allt sam­an, enda eng­in ástæða til ann­ars en að eiga alltaf gott hús­ráð upp í erm­inni þegar þörf er á. Og þetta hér kenn­ir okk­ur að þrífa eld­hús­vaskinn á auga­bragði.

Þegar þörf­in er stærst, er TikT­ok okk­ur næst! Hér sjá­um við hálfa sítr­ónu sem hef­ur verið notuð í mat­ar­gerð og kem­ur að góðum not­um við ann­ars­kon­ar störf, eða þrif. Þú ein­fald­lega spraut­ar vel af uppþvotta­lögi yfir sítr­ón­una og nudd­ar henni svo á all­an vaskinn - skol­ar og þurrk­ar yfir með þurr­um klút. En mynd­bandið hér fyr­ir neðan tal­ar sínu máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert