Gulrótakan sem þykir syndsamlega góð

Halla María Svansdóttir rekur veitingastaðinn Hjá Höllu í Grindavík.
Halla María Svansdóttir rekur veitingastaðinn Hjá Höllu í Grindavík. mbl.is/Mynd aðsend

Við rák­umst á þessa girni­legu gul­róta­köku­upp­skrift á In­sta­gram síðu Hjá Höllu – en kak­an er í boði á veit­ingastaðnum þeirra í Grinda­vík og þykir synd­sam­lega góð. Upp­skrift­in kem­ur upp­haf­lega frá mömmu henn­ar Höllu, sem og svo marg­ir aðrir grunn­ar á rétt­um þar á mat­seðli.

Gulrótakan sem þykir syndsamlega góð

Vista Prenta

Gul­rótaka Höllu sem þykir synd­sam­lega góð

  • 1 ½ bolli hveiti
  • 1 bolli syk­ur
  • 1 tsk mat­ar­sódi
  • 1 tsk lyfti­duft
  • 1 tsk kanill
  • ¾ bolli olía
  • 2 egg
  • ½ tsk salt
  • 1 bolli fínt saxaðar gul­ræt­ur
  • ½ bolli an­ana­sk­url + saf­inn
  • 1 tsk vanillu­drop­ar

Krem

  • 200 g rjóma­ost­ur
  • 1 msk mjúkt smör
  • 1 tsk vanillu­drop­ar
  • 2 boll­ar flór­syk­ur

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 180°.
  2. Blandið öllu sam­an og hrærið í 2-3 mín­út­ur.
  3. Setjið bréf í botn á 25x25 cm formi og hellið deig­inu í formið.
  4. Bakið í 25 mín­út­ur.
  5. Krem: Þeytið allt vel sam­an þar til ljóst og létt og smyrjið á kök­una.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert