Brauðbollur danska listakokksins

Brauðbollur eins og þær gerast bestar.
Brauðbollur eins og þær gerast bestar. mbl.is/STINE CHRISTIANSEN /SKOVDAL&SKOVDAL, MARIA P.

Það er eng­inn ann­ar en stór­kokk­ur­inn Claus Meyers sem býður okk­ur upp á þessa upp­skrift að hveiti­boll­um – sem henta vel í nest­ispakk­ann eða í bröns­inn um helg­ar. Hér eru ekta boll­ur á danska vísu.

Brauðbollur danska listakokksins

Vista Prenta

Brauðboll­ur danska lista­kokks­ins

  • 15 g ger
  • 1¾ dl kalt vatn
  • 1¾ dl köld nýmjólk
  • 2 egg
  • 700 g hveiti
  • 55 g syk­ur
  • 10 g muld­ar kar­dimomm­ur
  • 10 g salt
  • 55 g mjúkt smjör

Aðferð:

  1. Byrjið á því að blanda öllu hrá­efn­inu sam­an í skál – líka smjör­inu.
  2. Hnoðið deigið kröft­ug­lega í hönd­un­um eða í hræri­vél. Það tek­ur aðeins lengri tíma að hnoða smjörið inn í deigið þegar hnoðað er í hönd­un­um. Byrjið á því að hnoða deigið sam­an í skál­inni og hnoðaðu svo deigið vel á borðinu í ca. 6-8 mín­út­ur.
  3. Látið deigið hvíla í skál­inni í 5 mín­út­ur og hnoðið það síðan áfram í 2 mín­út­ur. Mik­il­vægt er að deigið fái að hvíla eft­ir hnoðun, t.d. á köld­um stað eins og í ís­skáp yfir nótt - eða á hlýrri stað eins og á eld­hús­borðinu í ½-1 klst (ef þú þarft að nota deigið fljótt). Vefjið deigið inn í eld­hús­filmu, eða setjið það í plast­fötu með loki eða filmu yfir.
  4. Skerið deigið í 15 bita. Mótið boll­ur með því að setja deigstykki á ann­an lóf­ann og rúlla því með fingr­um hinn­ar hand­ar­inn­ar. Setjið boll­urn­ar með 5 sm milli­bili á bök­un­ar­plötu með bök­un­ar­papp­ír.
  5. Látið boll­urn­ar hef­ast í 2-3 klst. Þegar deigið lyft­ist slak­ar það á og gerið fær að vinna vinn­una sína. Á meðan á lyft­ing­unni stend­ur skaltu fylgj­ast með stærð deigs­ins. Það á að næst­um tvö­fald­ast að stærð. Hversu lang­an tíma það tek­ur, fer eft­ir hita­stigi deigs­ins og hita­stig­inu í rým­inu. Mik­il­vægt er að breiða yfir deigið á meðan það er að hef­ast, til að yf­ir­borðið þorni ekki og springi. Ef yf­ir­borðið verður svo­lítið þurrt má pensla það með þeyttu eggi.
  6. Bakið boll­urn­ar í ca. 15--20 mín­út­ur við 180°. Færið þær yfir á grind og látið kólna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert