Veitingarnar í veislunni slógu í gegn

Glæsilegur gnægtarbakki sló í gegn í útskriftarveislu.
Glæsilegur gnægtarbakki sló í gegn í útskriftarveislu. Mbl.is/Mynd aðsend

Þegar veit­ing­ar vekja at­hygli í veisl­um þá mæt­ir mat­ar­vef­ur­inn á svæðið til að taka þær út. Og það er ná­kvæm­lega það sem við gerðum í þessu til­viki þegar við laumuðumst inn í út­skrift­ar­veislu í Gerðunum – en þar var ný­stúd­ent­inn í óða önn að und­ir­búa veislu­höld dags­ins ásamt fjöl­skyld­unni.

Útskrift­ir og ann­ars kon­ar stórviðburðir eru í al­gleymi þessa dag­ana og marg­ir sem njóta þess að geta loks­ins fagnað með sínu nán­asta fólki án allra tak­mark­anna. Í þess­ari veislu voru veislu­borðin að svigna und­an girni­leg­um veit­ing­um sem flest­ar komu frá veisluþjón­ust­unni Nomy. Eins  var metra lang­ur gnægt­ar­bakki sem sló held­ur bet­ur gegn hjá veislu­gest­um – yf­ir­full­ur af gúrme ost­um, ávöxt­um, hvers kyns skink­um, hnet­um, súkkulaði og öðrum sæt­ind­um. Ut­an­dyra mátti svo finna tjald með sann­kallaðri garðpar­tístemn­ingu – gashit­ara, bar og setu­stofu. Eft­ir því sem við kom­umst næst heppnaðist veisl­an vel og eng­inn gest­ur sem yf­ir­gaf veisl­una á fastandi maga en mynd­irn­ar ættu að tala sínu máli.

Allskyns krásir og girnilegt gotterí.
Allskyns krás­ir og girni­legt gotte­rí. Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Litlar konfektkökur frá Gulla Arnar.
Litl­ar kon­fekt­kök­ur frá Gulla Arn­ar. Mbl.is/​Mynd aðsend
Glæsileg kaka frá Sætum syndum.
Glæsi­leg kaka frá Sæt­um synd­um. Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Allur matur kom frá Nomy - glæsilega borið fram.
All­ur mat­ur kom frá Nomy - glæsi­lega borið fram. Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
Sannkallað veislueldhús.
Sann­kallað veislu­eld­hús. Mbl.is/​Mynd aðsend
Mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert