Bananar sagðir streituvaldar fyrir mýs

Bananar valda karlmúsum streitu ef marka má nýjustu rannsóknir.
Bananar valda karlmúsum streitu ef marka má nýjustu rannsóknir. mbl.is/

Vís­inda­menn hafa gert stórfurðulega upp­götv­un um karl­kyns mýs, en guli bogni ávöxt­ur­inn ban­an­ar, virðist stressa þær.

Þessi merki­lega upp­götv­un var gerð al­veg óvilj­andi á meðan vís­inda­menn voru að rann­saka viðbrögð karl­kyns músa við þunguðum og mjólk­andi kven­mús­um. Á meðan á rann­sókn­inni stóð komust vís­inda­menn að því að efna­sam­bönd í ban­ana kölluðu fram streitu­vald­andi viðbrögð hjá kal­kyns mús­um. Eins sýna karl­kyns mýs streitu í ná­lægð við kven­mýs sem ganga með eða eru mjólk­andi, sam­kvæmt niður­stöðum rann­sókn­ar­inn­ar er birt var í Science Advances. Karl­mýsn­ar sýndu einnig ókunn­ug­um karl­mús­um, árá­sagirni og leystu þvag. Og það er hér sem að ban­an­ar koma til sög­unn­ar!

Kom­ist var að því að efna­sam­bandið n-pentýl asetat, sem finnst í þvagi kven­kyns músa á síðari meðgöngu og við mjólk­ur­gjöf - er svipað efna­sam­bandi sem finn­ast í ýms­um ávöxt­um og notað til að fram­leiða ban­anaþykkni. Og þegar rann­sókn­art­eymið keypti ban­ana­ol­íuþykkni úr mat­vöru­búðinni og setti inn í búr karl­músa, þá jókst streitu­stigið þeirra veru­lega – eða urðu svipuð og streitu­viðbrögð þegar mýs taka þátt í slags­mál­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert