Svona eykur þú orkuna yfir daginn

Vatn, útvera og rúsínur eru orkugjafar sem má tileinka sér.
Vatn, útvera og rúsínur eru orkugjafar sem má tileinka sér. mbl.is/

Hér eru þrjár skot­held­ar aðferðir til að auka ork­una á auðveld­an og áreynslu­laus­an hátt. 

Vatn
Lík­am­inn sam­an­stend­ur af um tveim­ur þriðju hlut­um af vatni og ef þú stend­ur frammi fyr­ir ofþorn­un, þá hef­ur það áhrif á lík­amann og heil­ann. Og það get­ur leitt til höfuðverkja, ein­beit­inga­leys­is og þreytu. Drekktu um einn og hálf­an lítra á dag, þá í hvers kyns formi. Að drekka vatn dreg­ur líka úr löng­un í gos­drykki og aðra sæta drykki. 

Rús­ín­ur
Rús­ín­ur hafa oft verið sagðar sem hollt sæl­gæti, en þær inni­halda mikið af víta­mín­um og steinefn­um - og þær inni­halda einnig C-víta­mín sem styrk­ir ónæmis­kerfið. Rús­ín­ur eru virki­lega góður val­kost­ur við súkkulaðistykki sem gef­ur orku, en að öðru leyti er það ekki sér­lega hollt. 

Útivera
Flest okk­ar könn­umst við að hafa meiri orku yfir sum­ar­tím­ann en á vet­urna. Ástæðan gæti verið skort­ur á D-víta­míni yfir vetr­ar­mánuðina sem við fáum frá sól­inni, og stuðlar að orku­leysi og þreytu. Ef þú get­ur hraðað púls­inn ut­an­dyra með hreyf­ingu, þá eyk­ur þú fram­leiðslu á endorfíni sem ger­ir það að verk­um að skapið verður betra og þú færð meiri orku fyr­ir vikið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert