Einfaldar leiðir til að bæta borðstofuna

Hér færðu góð ráð varðandi borðstofuna.
Hér færðu góð ráð varðandi borðstofuna. mbl.is/Nuura

Það finn­ast ýms­ar leiðir til að flikka upp á borðstof­una, þá sér­stak­lega ef hún er í minni kant­in­um. En hér koma nokk­ur skot­held ráð.

Lit­ir
Prófaðu að mála vegg­ina í borðstof­unni, þá kannski í ljós­um lit­um. Það mun stækka rýmið og skapa létt­ari stemn­ingu.

Motta
Mott­ur eru til­vald­ar til að ramma inn ákveðin svæði. Hér mæl­um við með að fjár­festa í mottu sem ber sömu liti og vegg­irn­ir til að ná fram nota­legri stemn­ingu.

Fleiri mögu­leik­ar
Ef þú glím­ir við pláss­leysi, þá er upp­lagt að kaupa einn góðan stól við borðstofu­borðið sem get­ur einnig verið not­hæf­ur sem skrif­borðsstóll.

Hring­laga borð
Hring­laga borð geta oft­ar en ekki komið að góðum not­um frek­ar en þau sem eru löng eða fer­köntuð. Því til­valið að velta fyr­ir sér slík­um kaup­um ef plássið er af skorn­um skammti.

Speg­ill
Spegl­ar gefa meiri dýpt inn í rýmið. Hengdu upp speg­il til að rýmið virki stærra, en þeir geta líka lýst upp rýmið til muna ef út í það er farið.

Plönt­ur
Græn­blöðung­ar eru alltaf góð lausn til að gera hvaða rými sem er meira aðlaðandi. Þú get­ur einnig notað plönt­ur til að skipta upp rým­inu – ef þörf­in er þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert