Nýbakað focaccia með kryddjurtum

Nýbakað er alltaf best!
Nýbakað er alltaf best! Mbl.is/Getty

Það jafn­ast fátt á við nýbakað, hvort sem um brauð eða kök­ur eru að ræða. Hér bjóðum við ykk­ur aft­ur á móti upp á nýbakað focaccia brauð með kryd­d­jurt­um sem fylla bragðlauk­ana þetta sum­arið.

Nýbakað focaccia með kryddjurtum

Vista Prenta

Nýbakað focaccia með kryd­d­jurt­um

  • 4 dl volgt vatn
  • 1 dl mjólk eða súr­mjólk
  • 50 g ger, helst þurr­ger
  • 1 msk. reyrsyk­ur
  • 3 msk. ólífu­olía
  • 1-2 tsk. salt
  • U.þ.b. 700 g hveiti
  • Smá ólífu­olía til að bursta yfir
  • 4 stilk­ar af graslauk
  • 3 stilk­ar or­egano

Aðferð:

  1. Blandið vatni og mjólk og bætið geri, sykri og olíu sam­an við. Hrærið vel sam­an.
  2. Látið blönd­una standa með disk eða filmu yfir í u.þ.b. 15 mín­út­ur. Það kem­ur í veg fyr­ir ger­bragð.
  3. Bætið við salti og hveiti smátt og smátt í einu, þar til þú færð slétt deig sem auðvelt er að móta í kringl­ótt brauð.
  4. Penslið síðan með olíu og stráið salti yfir.
  5. Þrýstið graslauk og or­egano í deigið þannig að það verði olíu­borið og fest­ist.
  6. Látið deigið standa við stofu­hita í u.þ.b. 1 klst – ef til vill þarf að ýta kryd­d­jurt­un­um aft­ur niður í deigið ef­itr að það hef­ur lyft sér. Setjið inn í ofn við 180 gráður, í ca. 25-30 mín­út­ur – eða þar til brauðið hef­ur tekið á sig gyllt­an lit.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert