Næringarráðgjafinn Helga Magga, deildi því nú á dögunum hvernig hún eldaði kjúklingaleggi á óvenjulegn hátt. Festi hún kjúklinginna á ofngrindina þannig að þeir héngu í lausu lofti. Ekki fylgdi sögunni hvað hún notaði til verksins en við reiknum með að það hafi verið góður vír.
Kjúklingur í lausu lofti
- Kjúklingaleggir, magn fer eftir fjölskyldu
- Ein sæt kartafla
- Nokkrar kartöflur
- Brokkolí eftir smekk
- Salt og pipar
- Hvítlaukskrydd
- Kjúklingakrydd
Aðferð:
- Skerið grænmetið í litla bita og setjið í eldfast mót. Kryddið vel með salti, pipar og smá hvítlauk.
- Setjið inn í ofn við 200 gráður í 10 mínútur (aðeins á undan kjúklingnum).
- Kryddið kjúklinginn með kjúklingakryddi og hvítlauk. Leggjunum er svo stungið upp í bökunargrindina og reynið að láta þá hanga yfir eldfasta mótið því vökvinn mun leka af leggjunum ofan í grænmetið. Eldið kjúklinginn í 30 mínútur.