Sex skotheld skipulagsráð sem einfalda lífið

Þessi kona er með hlutina á hreinu er hún fer …
Þessi kona er með hlutina á hreinu er hún fer út að versla. mbl.is/

Hér koma sex skot­held ráð hvernig þú spar­ar tíma við inn­kaup­in og skipu­lagn­inu í eld­hús­inu.

Matarpl­an
Það tek­ur ekki meira en tíu mín­út­ur að gera matarpl­an fyr­ir vik­una, og enn styttri tíma ef þú skoðar viku­seðlana hér á mat­ar­vefn­um. Gerðu plan, því það auðveld­ar inn­kaup­in og þú get­ur  not­ast við aft­ur og aft­ur.

Sankaðu að þér upp­skrift­um
Það er gam­an að eiga úr­klipp­ur úr blöðum eða af­rit úr bók­um til að grípa í þegar okk­ur vant­ar inn­blást­ur í hvers­dags­mat­ar­gerð eða í vikumat­seðil­inn. Geymdu all­ar upp­skrift­ir á ein­um stað í eld­hús­inu.

Skrifaðu inn­kaupal­ista
Búðu til inn­kaupal­ista fyr­ir vik­una og prófaðu að flokka hlut­ina upp – skrifa all­ar mjólk­ur­vör­ur sam­an, all­an dósamat sam­an o.s.frv. Þá þarftu ekki að hlaupa fram og til baka á milli hill­anna í búðinni.

Röð og regla í eld­hús­inu
Hreinsaðu til jafn óðum á meðan þú eld­ar mat­inn. Þannig forðar þú þér frá stór­um sköfl­um af skál­um, pott­um og pönn­um þegar sest er til borðs.

Stækkaðu upp­skrift­ina
Prófaðu að elda aðeins meira en þörf er á, til að eiga af­gang fyr­ir dag­inn eft­ir. Eða þú get­ur smellt rest­inni af pot­trétt­in­um inn í frysti til að grípa í á anna­söm­um degi.

Fylgi­hlut­ir
Gott er að eiga krukk­ur í skáp­un­um af góðu pestói, salsa, chut­ney eða öðru eins – sem lyft­ir mat­ar­gerðinni á hærra plan. Þá ertu alltaf í góðum mál­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka