Brauðrétturinn sem tryllir lýðinn

Ljósmynd/Linda Ben

Hér erum við að tala um sjúk­lega lekk­er­an og bragðgóðan brauðrétt frá Lindu Ben sem er líka svo huggu­leg­ur að hann flokk­ast eig­in­lega sem borðskraut.

Sjálf kall­ar Linda rétt­inn Osta­brauðbröll­ur og full­yrðir hún að við eig­um öll eft­ir að elska þær. 

„Maður byrj­ar á því að skera brauðið að ofan í tígla, passið að skera ekki niður í botn­inn. Bræðið smjör og bætið út í það hvít­laukskryddi, notið skeið til að koma því al­veg ofan í rák­irn­ar á brauðinu en það er líka hægt að nota pensil. Skerið stein­selju og bætið henni ofan í rif­inn mozar­ella, troðið svo osta­blönd­unni al­veg ofan í rák­irn­ar. Pakkið brauðinu inn í álp­app­ír en passið að klessa hann ekki upp við brauðið. Bakið inn í ofni fyrst með ápapp­ír­inn lokaðan en opnið hann svo til að brúna skorp­una. Berið brauðið fram heitt með pizzasósu.“

Brauðrétturinn sem tryllir lýðinn

Vista Prenta

 Djúsí osta­brauðbröll­ur

  • Heilt súr­deigs­brauð eða ít­alskt­brauð
  • 150 g smjör
  • 1 msk. hvít­laukskrydd
  • 230 g rif­inn mozar­ella frá Örnu Mjólk­ur­vör­um
  • 1/​2-1 dl fersk stein­selja söxuð niður
  • 1-2 dl pizzasósa

Aðferð:

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið á 190°C, und­ir og yfir hita.
  2. Skerið tígla­mynst­ur í brauðið með því að skera ofan í það rend­ur með ca 2 cm milli­bili en passið að skera ekki al­veg í gegn, botn­inn á að vera heill. Snúið brauðinu og skerið þvert á rend­urn­ar þannig að það mynd­ist tígl­ar.
  3. Setjið álp­app­ír und­ir brauðið, hann þarf að vera það stór að hægt sé að loka álp­app­írn­um þannig að það hylji al­veg brauðið.
  4. Bræðið smjörið og bætið út í það hvít­laukskrydd­inu. Notið bæði skeið og pensil til að setja smjörið ofan í brauðið, gott að pensla fyrst yfir, opna svo raufarn­ar á brauðinu og hella smjör­inu ofan í með mat­skeið, pensla svo aft­ur yfir.
  5. Saxið niður ferska stein­selju og blandið sam­an við rifna ost­inn, setjið osta­blönd­una vel inn í rák­irn­ar á brauðinu, það er í góðu lagi þó svo að það sé ein­hver ost­ur ofan á brauðinu.
  6. Hyljið brauðið með álp­app­írn­um, reynið að láta álp­app­ír­inn ekki snerta brauðið mikið svo ost­ur­inn kless­ist ekki all­ur við álp­app­ír­inn, en allt í lagi að það ger­ist smá. Bakið inn í ofni í 15 mín, opnið álp­app­ír­inn og bakið áfram í 5-10 mín til að fá fal­leg­an lit á skorp­una.
  7. Setjið pizzasósu í skál.
  8. Berið fram á meðan brauðið er ennþá heitt með pizzasós­unni og dýfið osta­brauðbröll­un­um ofan í pizzasós­una.
Ljós­mynd/​Linda Ben
Ljós­mynd/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert