Sumardrykkurinn sem þú verður að prófa

Ískaldur og áfengislaus mojito.
Ískaldur og áfengislaus mojito. mbl.is/Tetley

Hér er á ferðinni út­gáfa af mojito fyr­ir áfeng­is­lausu þjóðina sem þó kýs að hafa góðan drykk við hönd. Drykk­ur­inn þykir óvenju svalandi og er upp­skrift­in í boði te-fram­leiðand­ans Tetley. En hér má not­ast við hvaða te-teg­und sem er.

Sumardrykkurinn sem þú verður að prófa

Vista Prenta

Ískald­ur mojito með grænu tei

  • 4 te­pok­ar af grænu tei
  • 500 ml sjóðandi vatn
  • 250 ml kalt vatn
  • Syk­ur, hun­ang eða aga­ve eft­ir smekk
  • Hand­fylli af myntu­lauf­um
  • Engi­fer
  • Lime safi til að smakka til
  • Lime skíf­ur og myntu­lauf til skrauts
  • Ísmol­ar

Aðferð:

  1. Setjið te­pok­ana í sjóðandi heitt vatnið í fimm mín­út­ur og takið síðan pok­ana upp úr vatn­inu.
  2. Hrærið kalda vatn­inu sam­an við það heita og bætið sykri eða hun­angi út í eft­ir smekk.
  3. Setjið myntu­lauf og engi­fer út í vatnið, ásamt sítr­ónu- eða li­mes­afa.
  4. Kælið inn í ís­skáp og berið fram með ís­mol­um.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert