Trylltasta samstarf síðari ára

Hversu fallegur hátalari!
Hversu fallegur hátalari! mbl.is/Bang og Olufsen

Við leggj­um ekki meira á ykk­ur, en Bang & Oluf­sen kynn­ir nýj­an hátal­ara í sam­starfi við tísk­uris­ann Balenciaga og út­kom­an er geggjuð.

Hér sjá­um við hátal­ara sem lít­ur út eins og taska tísku­fram­leiðand­ans Balenciaga, og gjör­bylt­ir hug­mynd­inni um fær­an­leg­an hátal­ara – en nýja var­an var kynnt á tískupall­in­um á sýn­ingu Balenciaga í Par­ís eða ‘Haute Cout­ure hi-fi’. Hátal­ar­inn er öfl­ug­ur og býður upp á 18 klukku­stunda raf­hlöðuend­ingu ásamt fjölpunkta teng­ingu. Útlitið er einnig ein­stakt, eða full­kom­in satí­ná­ferð með litlu hólfi að aft­an sem er hand­vafið úr ít­ölsku leðri.

Task­an eða hátal­ar­inn er til vitn­is er tvö stór­fyr­ir­tæki sam­eina krafta sína, þar sem hönn­un og gæði er í far­ar­broddi. Í raun mætti kalla þessa nýj­ung sem lista­verk, því hátal­ar­inn mun sýna sig út á við sem slíkt – hvort sem task­an standi í eld­hús­inu, stof­unni eða fari með þér á flakkið. Þá eru hér hug­sjón­ir og gildi sem fara aldrei úr tísku.

mbl.is/​Bang og Oluf­sen
mbl.is/​Bang og Oluf­sen
mbl.is/​Bang og Oluf­sen
mbl.is/​Bang og Oluf­sen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert