„Bae bað um samloku“

„Bae bað um sam­loku“ – var yf­ir­skrift Kylie Jenner á In­sta­gram er hún sýndi á reikn­ingi sín­um hvernig hún masteraði sam­loku­gerð í eld­hús­inu, bet­ur en marg­ur ann­ar.

Tra­vis Scott eig­inmaður Kylie, varð ekki fyr­ir von­brigðum með kon­una sína er hún fór í gegn­um sam­loku­gerð með 356 millj­ón fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram. Þar sýndi hún úr­val af hrá­efn­um sem átti að fara á sam­lok­una, sal­at, súr­ar gúrk­ur, lauk, kalk­ún og salami. Eins bætti hún við sinn­epi áður en hún smellti lok­unni sam­an og merkti barns­föður sinn á mynd­irn­ar sem hún birti á miðlin­um.

Kylie lét þar þó ekki við sitja og út­bjó aðra eins loku fyr­ir sig sjálfa, nema þar sleppti hún sinn­ep­inu og setti maj­ónes í staðinn. Að lok­um birti hún stutt mynd­skeið af sjálfri sér bíta í sam­lok­una ásamt Tra­vis og börn­un­um þeirra. Og við get­um nán­ast full­yrt að ein­hverj­ir fylgj­end­ur hafi stokkið til og farið í sam­bæri­lega sam­loku­gerð eft­ir að hafa séð þetta.

Kylie Jenner útbjó girnilega samloku handa manninum sínum sem sló …
Kylie Jenner út­bjó girni­lega sam­loku handa mann­in­um sín­um sem sló í gegn. mbl.is/​Kylie Jenner In­sta­gram
mbl.is/​Kylie Jenner In­sta­gram
mbl.is/​Kylie Jenner In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert